Framsæknar lausnir í landbúnaði og sjávarútvegi

Níu sprotafyrirtæki hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinn Til sjávar og sveita – frá hugmynd í hillu, sem leggur áherslu á sjálfbærar lausnir í landbúnaði og sjávarútvegi. 

Yfir sjötíu umsóknir bárust í hraðalinn sem fer nú fram í annað sinn í haust. Markmiðið er hvetja til aukinnar nýsköpunar í þessum grunnatvinnugreinum þjóðarinnar og aðstoða frumkvöðla við að byggja upp næstu kynslóð fyrirtækja með því að veita þeim faglega undirstöðu og hraða ferlinu frá því að hugmynd kviknar þar til viðskipti taka að blómstra.

“Mikið hefur verið fjallað um matvælaöryggi í kjölfar kórónaveirufaraldursins. Verkefnið er til þess fallið að efla verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu, enda snýr stór hluti þeirra verkefna sem valin hafa verið að framleiðslu og vinnslu matvæla. Fjölmargar afurðir þeirra sem tóku þátt í hraðlinum í fyrra eru nú þegar fáanlegar í helstu matvöruverslunum hér heima og sumar erlendis.”

– Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups

1SOS.jpg

Icelandic Startups hefur umsjón með hraðlinum í samstarfi við Íslenska sjávarklasann og er verkefnið styrkt af Matarauði Íslands, Nettó og Landbúnaðarklasanum.  Þau fyrirtæki sem valin eru til þátttöku fá tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum undir leiðsögn sérfræðinga í tíu vikur og aðgang að breiðu tengslaneti mentora.

Ingibjörg Ásta - Samkaup.jpg

“Það er okkur sönn ánægja að styðja við hraðalinn og hafa verslanir okkar reynst frábær stökkpallur fyrir þátttakendur. Íslenski dagvörumarkaðurinn er lítill og því liggur vel við að koma nýjum vörum á koppinn og fá skjóta endurgjöf frá viðskiptavinum verslana. Það er eftirsóknarvert að tengjast háskólaumhverfinu og starfa náið með frumkvöðlum. Hlutverk og þátttaka stjórnenda Nettó sem ráðgjafar fyrirtækjanna í hraðlinum veitir okkur tækifæri til að kynnast verkefnunum og stofnendum þeirra vel.”

-Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir, markaðsstjóri Nettó

 

Eftirtalin níu fyrirtæki taka þátt árið 2020

Vegangerðin
Framleiðir matvöru, sem inniheldur engar dýraafurðir, úr hráefni í nærumhverfi til að halda niður kolefnisspori hennar

 Broddur
Heilsuskot úr broddmjólk mjólkurkúa

Nielsen Restaurant
Framleiðir salatolíur úr vannýttum íslenskum villtum jurtum

HorseDay
Stafræn þjálfunardagbók fyrir hesta sem styðst við æfingasafn viðurkenndra þjálfunaraðferða frá Háskólanum á Hólum 

Eylíf
Heilsuvörulína sem samanstendur af hreinum íslenskum hráefnum og framleidd á Íslandi með sjálfbærum hætti

 Jöklavín
Fyrsti íslenski rjómalíkjörinn sem er framleiddur af megninu til úr innlendum hráefnum.

Sauðagull
Vinnur matarafurðir úr íslenskri sauðamjólk

Sælkerar ehf
Rækta mismunandi tegundir sveppa og míkrógrænmeti ásamt því að fara í þróunarvinnu á byggðarræktun

Marea – Íslenskt lífplast
Notar sjávarþang sem fæst á Íslandi sem grunnefni í framleiðslu á niðurbrjótanlegum vörum sem koma í stað einnota plasts

FréttirIcelandic Startups