Leita að bestu matarsprotum landsins

Icelandic Startups hafa síðastliðin tvö ár keyrt viðskiptahraðalinn Til sjávar og sveita og hafa 19 fyrirtæki farið í gegnum hraðalinn á þeim tíma. Til sjávar og sveita er af mörgum talinn einn skemmtilegasti viðskiptahraðallinn sem er í boði þar sem fyrirtækin eru oftar en ekki að vinna með raunverulegar vörur sem þau geta sýnt og leyft fólki að bragða á. Í ár verður hraðallinn keyrður sem sérstakur markaðshraðall að erlendri fyrirmynd og er hann unnin í samstarfi við GAN - Global Accelerator Network. 

Nettó og Landbúnaðarklasinn eru bakhjarlar hraðalsins og taka þau virkan þátt í allri framkvæmd hraðalsins og deila þar sinni þekkingu og reynslu þegar kemur að markaðssetningu á matvöru. Hraðallinn hlaut auk þess verkefnastyrk frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og er umsóknarfrestur til 1. nóvember. Óskað er eftir fyrirtækjum sem eru langt komin í vöruþróun, tilbúin með vöru á markað eða hafa hafið markaðssókn. Aðeins fimm fyrirtæki verða tekin inn í hraðalinn og er því leitað er að bestu matarsprotum landsins sem munu í gegnum hraðalinn fá öflugan undirbúning og stuðning fyrir markaðssókn innanlands og utan.

Hraðallinn hefst þann 15. nóvember og lýkur með uppskerudegi þann 10. desember. 

Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups: “Þetta er í fyrsta sinn sem við keyrum hraðal með áherslu á markaðssókn og útrás og erum við spennt fyrir verkefninu. Markmiðið er skýrt, við viljum styðja við útrás íslenskra matvæla og teljum þetta vera rétta leið. Svona markaðshraðlar eru sannprófaðir og við gerum þetta með góðum stuðningi frá GAN.”

Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri Til sjávar og sveita: “Fyrirtæki af landsbyggðinni hafa tekið virkan þátt með okkur og maður finnur muninn á því á milli ára hvað nýsköpun hefur komið sterk inn þar. Það er alltaf gaman að tengja frumkvöðla saman sem eru í sama geira en þeir virðast ná sérstaklega vel saman í matvælaiðnaðinum og myndast því alltaf mögnuð stemning í þessum hraðli.”

Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa  “Þegar við komum fyrst að Til sjávar og sveita sáum við hvað það býr gríðarleg dýnamík í þessum hóp og að þetta væri vettvangurinn sem við vorum búin að leita að. Við sáum líka hvernig við getum byggt brýr og hjálpað sprotafyrirtækjum að yfirstíga þá áskorun sem það er að koma vörum sínum í verslanir og alla leið til neytenda.”



Icelandic Startups