Sex fyrirtæki í Til sjávar og sveita 2021

Tuttugu umsóknir bárust í viðskiptahraðalinn Til sjávar og sveita sem hefst mánudaginn 15. nóvember og lýkur með uppskerudegi þann 10. desember. Í ár er hraðallinn keyrður með öðru sniði og er áherslan lögð á markaðssókn fyrirtækja sem eru tilbúin með vöru eða langt komin í vöruþróun. Umsóknirnar í ár voru mjög sterkar og var ákveðið að fjölga þáttakendum úr fimm í sex. Fyrirtækin sem valin voru inn í Til sjávar og sveita 2021 eru Jökla, Sifmar, MAR crisps, Náttúrulega gott, Nordic Wasabi og Næra.

Teymið hjá Næra notar einstaka aðferð í framleiðslu á heilsusamlegu snakki með íslensku hráefni. Nordic Wasabii framleiðir hið sjaldgæfa og eftirsótta ferska wasabi sem ræktað er á Íslandi við umhverfisvænar aðstæður. Jökla er fyrsti íslenski rjómalíkjörinn sem kom á markað í ár og hefur slegið í gegn. Náttúrulega gott  framleiðir handgert íslenskt granóla án allra aukaefna, viðbætts sykurs eða sætuefna. Krakkakropp er framleitt af Sifmar, einstaklega hollur íslenskur barnamatur en Sifmar leggur áherslu á að sporna gegn matarsóun. MAR crisps eru örþunnar harðfiskflögur sem ekki hafa sést áður á innlendum markaði. 

Rík áhersla verður á að tengja fyrirtækin við fjárfesta og aðra sérfræðinga á markaði. Til sjávar og sveita er af mörgum talinn einn skemmtilegasti viðskiptahraðallinn sem er í boði þar sem fyrirtækin eru oftar en ekki að vinna með raunverulegar vörur sem þau geta sýnt og leyft fólki að bragða á. 

Bakhjarlar Til sjávar og sveita 2021 eru Mjólkursamsalan og Ísey sem og Samkaup sem stutt hefur við verkefnið í samstarfi við Sjávarklasann, Landbúnaðarklasann og Matís. Verkefnið er jafnframt styrkt af Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. 

Freyr Friðfinnsson, verkefnastjóri Til sjávar og sveita: “Við höfum séð það í gegnum árin að fyrirtæki ná ótrúlegum framförum í okkar hröðlum en svo þegar þeim lýkur þá þarf eitthvað að taka við. Jökla tók þátt í fyrra og eru komin með vöru á markað og þá standa þau frammi fyrir nýjum áskorunum eins og skalanleika og markaðssetningu sem er einmitt það sem við leggjum áherslu á í þessari útfærslu á Til sjávar og sveita.”

Á fyrru myndinni eru Jökla, Krakkakropp, MAR crisps, Náttúrulega gott, Nordic Wasabi. Næra er á seinni myndinni.